Smíðavinna og viðhald
Við hjá Íslenskum Múrverktökum ehf. bjóðum upp á alhliða lausnir fyrir heimilið þitt í gegnum okkar eigin sérfræðinga í smíði. Okkar teymi, sem samanstendur af reyndum smiðum, er staðráðið í að veita framúrskarandi þjónustu og aðstoða þig við allar þínar þarfir.
Hvort sem þú þarft lagfæringar á hurðum og gluggum, endurnýjun á þaki eða þakrennum, erum við hér til að aðstoða þig. Smiðarnir okkar hafa sérhæft sig í bæði viðgerðum og viðhaldi og eru með hámarks gæði í huga.
Auk þess leggjum við áherslu á parketlagningu, uppsetningu eldhús- og baðherbergisinnréttinga, auk skápa. Okkar markmið er að skapa falleg og hagnýt rými í heimili þínu, þar sem metnaður okkar fyrir faglegum og öruggum lausnum skín í gegnum alla okkar vinnu.
Fylgdu Okkur á Instagram!
Vertu með okkur á Instagram til að fylgjast með spennandi verkefnum í rauntíma! Við deilum oft í Stories og erum að nálgast þúsund fylgjendur. Taktu þátt í okkar sköpunarferli og sjáðu hvernig við breytum rýmum!
“Við hér í Básenda vorum að láta gera við húsið okkar. Sprungur, inndælingu, múrviðgerðir og svo framvegis. Ég mæli heilshugar með Íslenskum múrverktökum, frábært viðmót, fagleg vinnubrögð. Íslenskir múrverktakar er vel samkeppnishæfir í verðum og skiluðu 100% verki. Bara að láta vita, allt í lagi að láta vita af góðu verki og verktökum.”
– Brynjar Björgvinsson
“Get ekki annað en deilt með því hvað ég er anægður með þjónustuna. Ég var einn af þeim sem reddaði mér allt sem ég þurfti til flísalagnar og endurnýjungar á baðherberginu hjá mér var kominn með allt á staðinn og þeir byrjuðu verkið strax og ekki hægt að setja út á neitt snillingar takk fyrir mig.”
– Halldór Valur
Verkbeiðni
Við svörum þér eins fljótt og auðið er!
